13.05.1972
Efri deild: 80. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (1741)
237. mál, lögreglumenn
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Eins og ég boðaði við 2. umr. þessa máls, þá hef ég nú það erindi í ræðustól að kynna brtt. við frv. til l. um lögreglumenn á þá lund, að 2. mgr. 14. gr. laganna hljóði svo:
„Ríkið tekur við húsnæði, sem ríki og sveitarfélög hafa stofnað til sameiginlega til afnota í þágu lögreglunnar, og skal þá sérstaklega samið um greiðslu á eignarhluta sveitar- eða sýslufélaga.“
Ég sé ekki ástæðu til þess að skýra þessa brtt. umfram það, sem ég gerði við 2. umr. þessa máls, en efni hennar er í samræmi við ábendingar frá stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga. Hér er um það að ræða, að sveitarfélögin séu jafnrétthá gagnvart ríkisvaldinu að þessu leyti. Það er mjög mismunandi, hvort um það er að ræða, að sveitarfélög hafi lagt fjármagn til slíks húsnæðis og í þeim tilvikum, sem það hefur verið, þá tel ég ekki rétt, að þau sveitarfélög standi höllum fæti og á þau séu lagðar skyldur umfram önnur. Að öðru leyti tel ég hér líka vera um sanngirnismál að ræða. Ég vonast til þess, að till. verði tekin til greina, þótt flutt sé skriflega.