18.05.1972
Neðri deild: 86. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1783 í B-deild Alþingistíðinda. (1764)
237. mál, lögreglumenn
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Þessi fsp. mín hefur sennilega ekki komizt til skila, úr því að fjmrh. biður ekki um orðið. Ég var hér með ákveðna fsp. og ég trúi ekki öðru en ég sé virtur svars við þeirri litlu fsp. (Fjmrh.: Vill þm. endurtaka hana?) Já, það er sjálfsagt að gera það. Það var efni, sem viðkemur 14. gr. og fjallar um húsnæði, sem ríkið yfirtekur. Þar segir í 14. gr., — þó að ég sé margbúinn að lesa þetta, þá skal ég gera það einu sinni enn, með leyfi forseta:
„Ríkið tekur við húsnæði, sem ríki og sveitar- eða sýslufélög hafa stofnað til sameiginlega, án greiðslu fyrir viðtöku þess, en sveitar- eða sýslufélög halda eignarhluta sínum í því. Ef afnotum í þágu lögreglunnar lýkur, ráðstafa eignaraðilar sameiginlega slíkum fasteignum.“
Ég vakti athygli á því, að í þessari gr. væri ekki neitt drepið á, hvernig með rekstur þessara stofnana eða þessa húsnæðis skuli fara, en vissulega hlýtur það að vera skynsamlegasta niðurstaðan og ályktunin, að ríkissjóður taki að sér rekstur þessa húsnæðis, þar sem hann yfirtekur þessar eignir og tekur að sér löggæzlukostnaðinn almennt. En í þessu sambandi vakti ég athygli á því, að í samþykktum fjárlögum fyrir árið 1972 er sérstaklega gerð áætlun um annars vegar hegningarhúsið í Reykjavík og hins vegar fangaklefa lögreglunnar í Reykjavík. Þarna er um að ræða fasteignir, húsnæði, sem hefur hingað til verið í eigu beggja þessara aðila, ríkissjóðs og borgarsjóðs, og verið rekið sameiginlega af þessum aðilum. En ég get ekki annað betur séð en ef mín ályktun er rétt af þessu frv., sem hér liggur fyrir, þá stangist það á við það, sem stendur hér í fjárlögunum, vegna þess að í fjárlögunum er gert ráð fyrir því, að á móti gjöldum komi tekjur, sem eru helmingur af áætluðum gjöldum. Þess vegna spyrst ég fyrir um skýringar á þessu, hvort þetta sé réttur skilningur hjá mér, að jafnframt því sem ríkisstj. hyggst yfirtaka allan rekstrarkostnað af löggæzlunni, þá hyggist hún áfram láta borgarsjóð taka að sér helminginn af rekstri þessa húsnæðis. Við þessu vildi ég vinsamlegast fá einhver svör eða einhverjar upplýsingar um þetta.