18.05.1972
Efri deild: 95. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1905 í B-deild Alþingistíðinda. (1911)
255. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. með þeim orðum, sem ég segi hér, en þau eru flutt hér að gefnu tilefni og ekki sízt vegna ummæla síðasta ræðumanns, hæstv. félmrh., þar sem hann var að sjá ofsjónum yfir því, að rætt væri um frv. til húsnæðismálalaga í einn dagpart eða svo hér í þessari hv. d. Ég vil leyfa mér að víta alveg sérstaklega þá málsmeðferð, sem hæstv. félmrh. stendur fyrir á þessu máli, og rifja það upp, að þessu máli er útbýtt hér á Alþ. 17. apríl s. l. eða rétt fyrir einum mánuði. Það tók sem sagt hæstv. félmrh. tímann frá 14. júlí 1971 til 17. apríl 1972 að koma þessu frv. frá sér. Ég minni á það, að hæstv. félmrh. var gagnrýninn á fyrrv. stjórn fyrir vísitöluákvæði húsnæðismálastjórnarlána, gerði það að höfuðuppistöðuefni í árás á ríkisstj. í síðustu kosningum, krafðist þess af fyrrv. ríkisstj., að hún breytti þeim ákvæðum þegar í stað fyrir kosningar til þess að það yrði ekki svikið eftir kosningar. Þegar hann svo sjálfur sezt í ráðherrastólinn, hefur hann ekki meira við en svo, að hann lætur marga mánuði líða án þess að nokkrir tilburðir séu uppi hafðir til þess að breyta þessu ákvæði, og gerir það ekki fyrr en útséð var um það, að breytingin tæki gildi á þessu ári, þ. e. hann var búinn að missa af strætisvagninum á þessu ári, var of seinn að bjarga skjólstæðingum sínum, sem hann bar umhyggju fyrir fyrir kosningar, en lét sér í léttu rúmi liggja eftir kosningar. Ég víti slíka málsmeðferð og segi það eins og er, að stjórnarandstaðan og Sjálfstfl. og þingflokkur hans getur ekki fellt sig við svona vinnubrögð. Ég minni enn fremur á það, að nál., — fyrst má geta þess, að 1. umr. málsins er 19. og 20. apríl, þannig að málið fer til n. 21. apríl, — nál. er útbýtt 16. og 17. maí, og fyrst eftir að í viðræðum við hæstv. forsrh. hafði komið fram af hálfu þingflokks Sjálfstfl., að hann taldi ekki unnt á svo skömmum tíma að afgreiða þetta mál og hæstv. forsrh. taldi ekkert við það að athuga. Það var léð máls á því að afgreiða sérstaklega breytingu á vísitöluákvæðunum, en á öðru ekki. Það er fyrst eftir að þingflokkur Sjálfstfl. stendur í þeirri meiningu, að á það sé engin áherzla lögð að fá frv. samþykkt, samkv. umsögn sjálfs hæstv. forsrh., að nál. er skilað. Nál. er útbýtt í Nd. 16. og 17. maí, í fyrradag og daginn þar áður. 2. umr. er í fyrradag og í gær og í nótt í Nd. og málið er ekki komið hingað til okkar fyrr en í dag. Ég held, að það sé meira en lítil óskammfeilni af hæstv. ráðh. að telja þetta málsmeðferð, sem sæmandi sé, og ítreka fyllstu mótmæli og gagnrýni á slíka málsmeðferð.
Það er ekki hægt að bera það á borð fyrir hv. þdm. núna, að það liggi á að fá vísitöluákvæðunum breytt, þegar upplýst er, að hæstv. ráðh. hefur ekki hreyft legg né lið til að fá þeim breytt mánuðum saman og gerir ekki þessa tilraun fyrr en eftir að breytingin getur haft þýðingu á þessu ári. Það er sagt, að stjórnarandstaðan hafi þvælzt og vafizt fyrir málinu. Ég vil taka það fram, að í n. í Nd. stóð aldrei á nm. sjálfstæðismanna að ræða málið og taka það til meðferðar. Hver stjórnar heilbr.og félmn. Nd.? Hver hefur meiri hl. í þeirri n.? Er það ekki ríkisstj. og ríkisstj.-flokkarnir? Ég vil þess vegna hvetja hæstv. félmrh. til þess að snúa geiri sínum að samherjum sínum í ríkisstj.-flokkunum, þegar hann er að tala um, að þvælzt hafi verið fyrir málinu, og sannleikurinn er sá, að í stuðningsflokkum ríkisstj. er mikil gagnrýni uppi höfð á meðferð hæstv. ráðh. á þessu máli. Og það er mjög ákveðin skoðun margra stuðningsmanna ríkisstj., að betur hefði þurft að fjalla um málið. Það er líka mjög sjaldgæft, að fram komi sammála álit stjórnar eins og húsnæðismálastjórnar um frv. sem þetta. En það sammála álit er í stuttu máli á þá lund, að vandamálunum séu engin skil gerð í þessu frv., sem hæstv. ráðh. flytur nú á þingi, og því beri að fresta þessu máli. Svo belgir hæstv. ráðh. sig út hér og fárast yfir því, að við sjálfstæðismenn sættum okkur ekki við svona málsmeðferð. Við höfum sennilega rætt um þetta mál samanlagt í örfáa klukkutíma í báðum d. og í þeim fjórum umr., sem um málið hafa farið fram. Ég held, að hæstv. ráðherrar, því að í þann flokk má taka fleiri ráðh„ séu farnir að láta valdið stíga sér nokkuð til höfuðs, ef þeir vilja vera alveg stikkfrí og gera Alþ. að einhvers konar afgreiðslustofnun fyrir sig. Ég held, að lýðræðiskenndin sé í það minnsta ekki djúprist, þegar slík ummæli eru skoðuð. (Forseti: Ég vil spyrja hv. ræðumann, hvort hann eigi mikið eftir af ræðu sinni, vegna þess að beðið hefur verið um fundarhlé.) Ég get ekki, herra forseti, fundið að þessari spurningu, vegna þess að ég hafði sjálfur óskað eftir fundarhléi kl. 4, en ég skil vel, að samherjum hæstv. félmrh. hafi ekkert liðið vel undir þessari ádrepu, sem ég vil leggja alvarlega áherzlu á, og ég ítreka mótmæli mín að öllu leyti varðandi meðferð þessa máls, sem er ljóst. hve vitaverð er. eftir hina ítarlegu ræðu hv. 5. þm. Vestf., sem sýndi glögglega hin miklu og margslungnu vandamál í húsnæðismálum. sem að engu leyti er gerð tilraun til að glíma við í þessu frv. Ég læt máli mínu lokið.