16.12.1971
Neðri deild: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1939 í B-deild Alþingistíðinda. (1941)
131. mál, bann gegn veiðum með flotvörpu og botnvörpu
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka þeirri nefnd fyrir störf sín, sem stendur að flutningi þessa frv. Ég veit, að hún hefur þegar kynnt sér málið allítarlega og komizt að svipaðri niðurstöðu og ég hafði komizt að, þ. e. að ekki eru tök á því, eins og nú standa sakir, að gera neinar verulegar breytingar á þeim veiðiheimildum, sem í lögum hafa verið um nokkurt skeið varðandi veiðar með botnvörpu innan fiskveiðilandhelginnar. Það er enginn vafi á því, að þörf er á að gera ýmiss konar breytingar á þessum reglum, og ég tek undir það með síðasta ræðumanni, að það eru nokkur atriði, sem hefði gjarnan mátt breyta. En við þekkjum það mætavel, að varðandi þessi mál eru uppi mjög skiptar skoðanir, því að sitt sýnist hverjum um það, hvað skuli veita rúmar heimildir til veiða með botnvörpu innan fiskveiðimarkanna. Það er því nokkurn veginn alveg ljóst, að ef farið yrði að flytja hér brtt. að nokkru ráði, a. m. k. varðandi þessar veiðiheimildir nú, mundi ekki vera hægt að afgreiða málið fyrir áramót og þá tækju við gömlu lögin, sem banna fullkomlega allar veiðar með botnvörpu innan fiskveiðimarkanna. Þá tæki sem sé við það gamla og erfiða ástand, sem hér var, áður en þessar veiðiheimildir voru lögfestar, en þá mátti segja, að ríkti í þessum efnum alger glundroði.
Ég er einnig á þeirri skoðun, að það sé óheppilegt, að við Íslendingar hefjum að nýju þær deilur — sem eflaust munu síðar meir koma upp, þegar setja þarf reglur varðandi þessar veiðar — nú á því tímabili, þegar við erum fyrst og fremst að fjalla um það að stækka fiskveiðilandhelgi okkar og þurfum á því að halda, að við stöndum allir saman um meginefni málsins, og megum ekki skipta okkar liði vegna deilna um það, hvernig háttað skuli nýtingarreglum hér okkar á milli. Ég tel því heppilegt að láta deilurnar um þessi mál kyrrar liggja fram eftir næsta ári og gera helzt ekki út um þetta, fyrr en við höfum náð okkar stóra marki í sambandi við stækkun fiskveiðilandhelginnar.
Ég styð því mjög eindregið, að þetta frv. nái fram að ganga í þeim búningi, sem það er, og vil vænta þess, að aðrir þm. geti fallizt á þessa lausn málsins og á það, að hægt verði að hraða afgreiðslu þess. Eins og fram hefur komið, hefur sérstök þingmannanefnd undirbúið þetta frv., fimm þm. úr öllum flokkum, og þeir standa raunverulega að flutningi þessa frv., þó að aðeins fjórir þeirra eða þeir, sem setu eiga í þessari d., séu beinir flm. Ég vil því vænta þess, að það sé alveg samstaða um málið, og af þeim ástæðum sé ég ekki heldur þörf á því að fara að vísa þessu máli hér til þn., þar sem sérstök þingmannanefnd hefur fjallað um málið og flytur málið, en teldi hins vegar rétt, að 2. umr. um málið yrði aftur ekki fyrr en á morgun. Ef sjútvn. óskar sérstaklega eftir því að fjalla um málið, gæti hún að sjálfsögðu notað tímann til þess, jafnvel þó að frv. yrði ekki vísað beint til nefndar.
Ég ítreka svo þakkir mínar til nefndarinnar, sem hefur starfað vel í málinu, og lýsi yfir stuðningi mínum við þetta frv.