16.03.1972
Neðri deild: 52. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1995 í B-deild Alþingistíðinda. (2161)

17. mál, atvinnu- og þjónustufyrirtæki sveitarfélaga

Frsm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Hv. 9. landsk. þm. spurðist fyrir um það, undir hvaða aðila þetta frv. hefði verið borið utan þings. Það var leitað umsagnar Sambands ísl. sveitarfélaga um málið, og hún var jákvæð.