25.11.1971
Efri deild: 17. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í B-deild Alþingistíðinda. (238)

22. mál, gjaldaviðauki

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Frv. á þskj. 22, um að innheimta ýmis gjöld með viðauka, er gamall kunningi hér í hv. d. og er í sama formi og verið hefur um meðferð á slíku máli. Þetta mál hefur verið afgr. frá hv. Nd. með samhljóða afgreiðslu, og ég vona, að það verði eins hér í þessari hv. d. Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.