08.05.1972
Neðri deild: 72. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2073 í B-deild Alþingistíðinda. (2388)
25. mál, siglingalög
Frsm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Hv. sjútvn. Nd. hefur haft mál þetta til meðferðar, sent það til umsagnar ýmsum aðilum og rætt það á nokkrum fundum sínum. Í sjálfu sér sé ég ekki ástæðu til þess að ræða frekar efnislega málið. Það var rætt mjög ítarlega af 1. flm. málsins við framsögu þess hér á fyrri hluta þingsins, en rétt er að geta þess og láta það koma fram, að eitthvert samkomulag mun vera um það á milli hæstv. sjútvrh. og a. m. k. Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, ef ekki Sjómannasambands Íslands, að mál þetta skuli samþykkja vegna samninga, bátakjarasamninga um s. l. áramót.
Farmanna- og fiskimannasambandið sendi ítarlega umsögn um málið og óskaði eftir nokkrum breytingum á því, sem sjútvn. taldi sig ekki geta orðið við, þótt hins vegar nm. hafi ákveðið að samþykkja það með undirskrift sinni, en eins og sjá má í nál., áskildu þeir sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. Ein slík hefur komið fram frá hæstv. sjútvrh. sjálfum þess efnis, að síðasta mgr. frv. breytist. Í frv. er hún á þá leið, að lækka megi fébætur eða láta þær niður falla, ef sá, sem fyrir slysi eða tjóni varð, er meðvaldur þess eða meðábyrgur. Till. hæstv. ráðh. er á þá leið að breyta þessu orðalagi þannig, að ef sá, sem fyrir slysi eða tjóni varð, hefur með framkomu sinni sýnt vítavert gáleysi, sem leitt hefur til slyssins eða tjónsins, megi lækka eða fella niður fébætur. Um þessa brtt. hefur ekki verið rætt í hv. sjútvn. og ekki heldur um þá umsögn, sem kom fyrst í dag frá Landssambandi ísl. útvegsmanna, en vegna mistaka, kannske bæði hv. sjútvn. og starfsmanna þingsins, þá er aðeins stutt síðan þeir fengu mál þetta til umsagnar. Mér þykir rétt að láta koma fram efnislega það, sem þeir segja í umsögn sinni, en þeir lýsa sig mjög eindregið andvíga breytingu þeirri, sem frv. gerir ráð fyrir, þar sem lausleg áætlun hefur leitt í ljós, að hækkun iðgjalda á ábyrgðartryggingu skipverjanna vegna breytinganna muni nema nokkrum tugum millj. Þeir óska þess jafnframt, að frv. verði ekki afgreitt á þessu þingi, þar sem endanlega liggur ekki fyrir, hver útgjaldaaukningin hjá skipaeigendum verður með samþykkt þess. Þeir taka svo fram í lok umsagnar sinnar, að þeir hafi fengið mjög skamman frest til að kanna mál þetta, þótt efni þess snerti svo mjög alla skipaeigendur, og er þess vegna ekki óeðlilegt, að málinu verði frestað.
Þá má og geta þess, að Samband ísl. tryggingafélaga hefur sent ítarlega umsögn. Íslenzk endurtrygging var með umsögn frá s. l. vetri um málið, og leggjast þeir gegn því, að það verði samþ. Ég hefði talið rétt, vegna umsagnar Landssambands ísl. útvegsmanna, að fresta umr. um mál þetta nú og ræða þá umsögn í hv. sjútvn. og reyndar við hæstv. sjútvrh. líka, áður en málið verður afgr. héðan við 2. umr. hér í hv. deild.