17.05.1972
Neðri deild: 82. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2081 í B-deild Alþingistíðinda. (2420)

151. mál, lífeyrissjóður sjómanna

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur athugað þetta frv. um breyt. á lögum um lífeyrissjóð sjómanna. Efni þess er varðandi makabætur sjóðfélaga og það er flutt til að samræma ákvæði laga um lífeyrissjóð sjómanna hliðstæðum ákvæðum í lögum og reglugerðum um lífeyrissjóði hinna almennu verkalýðsfélaga. Þykir vel fara á því og eðlilegt, að hér gildi sömu ákvæði.

Fjhn. leggur til, að frv. verði samþykkt.