25.10.1971
Neðri deild: 5. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2413 í B-deild Alþingistíðinda. (2575)

Herstöðva- og varnarmál

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir svör hans. Mér er það algerlega ókunnugt, þó að það kunni að vera rétt hjá honum, að slíkt tíðkist í öðrum löndum, að slíkar ráðherranefndir séu settar á laggirnar eins og hér er um að ræða, og mér er það alveg einstakt, og það fer ekki hjá því, að það veki athygli, að við hliðina á hæstv. utanrrh. eru settir tveir fyrrv. ritstjórar Þjóðviljans til þess að fjalla um öryggismál landsins.

Um þetta skal ég ekki fara fleiri orðum nú, en það verður meira um þetta fjallað, áður en lýkur.