13.12.1971
Sameinað þing: 23. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2428 í B-deild Alþingistíðinda. (2592)

Herstöðva- og varnarmál

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Það er sjálfsagt að svara þessari fsp. frá hv. 1. þm. Reykv. Svarið er einfaldlega nei. Það hefur ekki enn verið óskað eftir endurskoðun á samningnum skv. ákvæðum hans. Það kom m. a. alveg skýrt fram, að ég ætla, í ræðu þeirri, sem utanrrh. flutti á NATO-fundinum, að við værum enn að kynna okkur málið og að við mundum ekki stiga þau skref fyrr en að okkar eigin athugun lokinni.