28.02.1972
Sameinað þing: 42. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2434 í B-deild Alþingistíðinda. (2601)

Fiskveiðilandhelgismál

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. svar hans. Ég hef engu við þetta að bæta öðru en því, að það er einlæg og eindregin ósk mín, að hann hagi kynningu landhelgismálsins á erlendum vettvangi af meiri ábyrgðartilfinningu en hér hefur átt sér stað.