09.05.1972
Sameinað þing: 65. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2439 í B-deild Alþingistíðinda. (2608)
Fiskveiðilandhelgismál
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Tilefni þeirrar aths., sem hér var gerð af hv. seinasta ræðumanni, er það, að erlent blað telur sig hafa eftir hv. þm. Geir Hallgrímssyni ummæli um landhelgismálið, sem verða að sjálfsögðu að teljast mjög sérstök og nánast furðuleg. Það, sem síðan gerist í málinu, er það, að Þjóðviljinn skýrir frá því, hvað staðið hafi í þessu erlenda blaði. Geir Hallgrímsson vill hins vegar ekki kannast við það, að hann hafi mælt þau orð, sem þarna eru eftir honum höfð, og það segir sig sjálft, að hann hefur fyllsta rétt til þess að mótmæla því, sem ranglega er eftir honum haft. Ég hef ekki neina ástæðu til að ætla annað en að hann fari þar með rétt mál og þarna sé um misskilning að ræða. Ég tel, að það sé mergurinn málsins í þessu tilviki, að þarna þurfi að vera um að ræða leiðréttingu á því, sem rangt er eftir einstökum manni haft. Ég vil hins vegar undirstrika það, að mér sýnist, að leiðrétting hans eigi nú fyrst og fremst erindi við brezkan almenning, og ég held, að það sé fyllsta ástæða til þess, að hv. þm. geri ráðstafanir til þess að koma á framfæri leiðréttingu við það blað, sem hann telur, að hafi birt eftir sér röng ummæli. Ég vil minna á það hér, að þetta er ekki í fyrsta sinn, sem atburðir af þessu tagi gerast hér. Það er ekki í fyrsta sinn í vetur, að röng ummæli eru höfð eftir íslenzkum þm. Ég vil, minna á það hér, að ýmis ummæli hafa verið höfð eftir hv. þm. Jónasi Árnasyni, sem hafa síðan verið hent á lofti í íslenzkum blöðum, og út af þeim röngu ummælum hafa síðan verið spunnar ýmsar ómaklegar svívirðingar í hans garð, án þess að hann hafi séð ástæðu til þess að gera svo stórt númer út úr málinu, að hann kveddi sér hljóðs hér utan dagskrár á Alþ. En það er rétt, að þetta komi fram, vegna þess að þarna er um algerar hliðstæður að ræða.