28.10.1971
Neðri deild: 7. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2467 í B-deild Alþingistíðinda. (2642)

Lánasjóður íslenskra námsmanna

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég ætlaði nú ekki að hefja almennar fjárlagaumr. eins og hæstv. fjmrh. var að gera í sinni síðustu ræðu, en mig langar til þess að við fáum upplýsingar um það, hvenær það var, sem tillögurnar komu, hvaða dag ágústmánaðar, um fjárveitingar til lánasjóðsins og hvenær það var í ágústmánuði, sem fjárlagafrv. fór í prentun. Og var þá svo langt komið prentun þess, þegar tillögurnar bárust, að ekki væri hægt að gera leiðréttingu á þessu, sérstaklega með hliðsjón af þessum skeleggu yfirlýsingum, sem nú hafa verið gefnar?