14.10.1971
Sameinað þing: 2. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2489 í B-deild Alþingistíðinda. (2673)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Pétur Pétursson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til að athuga kjörbréf Gylfa Þ. Gíslasonar, sem dvelur erlendis. N. hafði borizt eftirrit af kjörbréfinu, sem er rétt eftirrit, staðfestir f. h. yfirkjörstjórnar Reykjavíkur Páll Líndal. Kosningu hafði hlotið af A-lista, Alþfl., Gylfi Þ. Gíslason, Aragötu 11, Reykjavík, sem 7. þm. Reykv.
Kjörbréfanefnd leggur til, að kjörbréfið sé tekið gilt og samþykkt.