18.10.1971
Sameinað þing: 3. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2490 í B-deild Alþingistíðinda. (2676)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Jóhannesar Guðmundssonar bónda, Auðunarstöðum, Vestur-Húnavatnssýslu, en hann var í alþingiskosningunum í sumar kjörinn 2. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi vestra. Kjörbréfið er undirritað af yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis vestra, en eins og kunnugt er, situr 1. varaþm. Sjálfstfl. í þessu kjördæmi nú á þingi.

Kjörbréfanefnd leggur til, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.