16.11.1971
Sameinað þing: 14. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2494 í B-deild Alþingistíðinda. (2692)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (EystJ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 16. nóv. 1971.

Framkvæmdastjóri Sjálfstfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Axels Jónssonar, 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, sem nú er veikur á sjúkrahúsi, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 2. varamaður flokksins í kjördæminu, Ingvar Jóhannsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþ., þar sem aðalmaður er enn forfallaður.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Björn Jónsson,

forseti Ed.