15.12.1971
Sameinað þing: 25. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2497 í B-deild Alþingistíðinda. (2710)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf Sigurðar Magnússonar, 8. varaþm. í Reykjavík, sem er 2. varaþm. Alþb. í Reykjavík og ætlað er að taka sæti Magnúsar Kjartanssonar, sem er forfallaður vegna veikinda, en 1. varamaður flokksins í kjördæminu er erlendis og kemst því ekki til þings. Kjörbréfanefnd leggur til, að kosningin verði metin gild og kjörbréfið samþykkt.