20.01.1972
Sameinað þing: 29. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2498 í B-deild Alþingistíðinda. (2713)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Pétur Pétursson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman og athugað kjörbréf Karls St. Guðnasonar, Heiðarbrún 8, Keflavík, sem er 1. varaþm. Alþfl. í Reykjaneskjördæmi. Kjörbréfanefnd leggur til, að kjörbréfið sé samþ. og kosningin metin gild.