07.02.1972
Sameinað þing: 34. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2499 í B-deild Alþingistíðinda. (2716)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (EystJ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 3. febr. 1972.

Hannibal Valdimarsson, 3. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður SF í Vestfjarðakjördæmi, Hjördís Hjörleifsdóttir húsmæðrakennari, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Gils Guðmundsson,

forseti Nd.

Samkv. þessu hefur hv. kjörbréfanefnd skoðað kjörbréfið, og tekur til máls frsm. hennar, hv. 6. þm. Norðurl. e.