14.02.1972
Sameinað þing: 36. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2500 í B-deild Alþingistíðinda. (2720)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið til athugunar kjörbréf Alexanders Stefánssonar oddvita í Ólafsvík, sem er 1. varaþm. Framsfl. í Vesturlandskjördæmi. Hann tekur sæti hér um nokkurra vikna skeið í fjarveru Ásgeirs Bjarnasonar, 1. þm. Vesturl.

Kjörbréfanefnd mælir með því, að kjörbréfið verði samþ. og kosningin metin gild.