16.02.1972
Sameinað þing: 38. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2502 í B-deild Alþingistíðinda. (2728)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Magnúsar H. Gíslasonar bónda, Frostastöðum, 1. varaþm. Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra.

Magnús H. Gíslason tekur hér sæti í fjarveru Ólafs Jóhannessonar, 1. þm. Norðurl. v. Kjörbréfanefnd hefur ekkert að athuga við kjörbréf þm. og mælir með því, að kosning hans verði metin gild og kjörbréfið samþykkt.