22.02.1972
Sameinað þing: 40. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2503 í B-deild Alþingistíðinda. (2731)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Karls G. Sigurbergssonar, sem mun nú taka sæti hér á Alþ. í forföllum Gils Guðmundssonar. En Karl G. Sigurbergsson er 1. varaþm. Alþb. í Reykjaneskjördæmi. Kjörbréfanefnd hefur ekkert fundið athugavert við kjörbréfið og mælir með samþykkt þess og að kosning þm. verði metin gild.