09.03.1972
Sameinað þing: 46. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2507 í B-deild Alþingistíðinda. (2742)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið til athugunar kjörbréf Stefáns Jónssonar dagskrárfulltrúa, 1. varaþm. landsk. þm. Alþb., og við höfum kynnt okkur þau kjörgögn og önnur gögn, sem hafa legið fyrir, og höfum ekkert við þau að athuga og leggjum til, að kosning þm. verði metin gild og kjörbréfið samþykkt.