14.03.1972
Sameinað þing: 48. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2508 í B-deild Alþingistíðinda. (2748)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið og athugað kjörbréf Jóns Helgasonar bónda, Seglbúðum, sem er 2. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi. Leggur kjörbréfanefnd einróma til. að kosning hans verði metin gild og kjörbréfið samþ.