15.03.1972
Sameinað þing: 49. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2509 í B-deild Alþingistíðinda. (2751)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar tvö kjörbréf. Í fyrsta lagi kjörbréf Sigurðar Blöndal skógarvarðar, 1. varaþm. Alþb. í Austurlandskjördæmi, sem mætir í forföllum Lúðvíks Jósepssonar, 2. þm. Austf.

Í öðru lagi kjörbréf Ásbergs Sigurðssonar borgarfógeta, 1. varaþm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, sem mætir í veikindaforföllum Matthíasar Bjarnasonar, 2. þm. Vestf.

N. mælir með, að kosningin verði metin gild í báðum þessum tilvikum og kjörbréfin bæði verði samþykkt.