27.04.1972
Neðri deild: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (2770)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (GilsG):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 26. apríl 1972.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sigurður Blöndal skógarvörður, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Lúðvík Jósepsson,

2. þm. Austf.“

Sigurður Blöndal hefur áður á þessu þingi tekið hér sæti og rannsókn á kjörbréfi hans þá farið fram. Býð ég hann velkominn til starfa.