21.12.1971
Efri deild: 39. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2526 í B-deild Alþingistíðinda. (2804)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forseti (BJ):

Þar sem þetta verður síðasti fundur hv. þd. fyrir þinghlé vegna jólahátíðarinnar, vil ég mega nota tækifærið til þess að óska öllum hv, þdm. gleðilegra jóla og að þeir megi njóta jólahelginnar með fjölskyldum sínum. Þeim, sem um lengri veg eiga að sækja til síns heima, óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu. Jafnframt vil ég óska hv. þdm. gleðilegs nýárs og þakka þeim ágæta samvinnu og umburðarlyndi við mig sem forseta á liðnu ári.

Ég vil svo að lokum óska þess, að við megum öll hittast heil. þegar Alþ. kemur saman að nýju á næsta ári.