21.12.1971
Sameinað þing: 28. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2528 í B-deild Alþingistíðinda. (2811)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þm. þakka hæstv. forseta fyrir hlýjar óskir í okkar garð. Við óskum hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég vil leyfa mér nú fyrir hönd okkar þm. allra að þakka hæstv. forseta fyrir mjög trausta, örugga og réttláta fundarstjórn, það sem af er þessu þinghaldi, og veit ég örugglega, að þar mæli ég fyrir hönd allra þm. og persónulega mæli ég það af heilum hug. Við væntum þess allir að hitta hæstv. forseta aftur heilan á nýbyrjuðu ári.