21.12.1971
Sameinað þing: 28. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2529 í B-deild Alþingistíðinda. (2815)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Hinn 11. janúar 1972 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið, samkv. till. forsrh., að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda fimmtudaginn 20. janúar 1972, kl. 14.

Gert í Reykjavík, 11. janúar 1972.

Kristján Eldjárn.

Ólafur Jóhannesson.

Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.