20.05.1972
Neðri deild: 90. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2530 í B-deild Alþingistíðinda. (2820)

Starfslok deilda

Forseti (GilsG):

Þar sem þetta verður síðasti fundur Nd. Alþ. að þessu sinni, vil ég þakka öllum hv. þdm. ánægjulega samvinnu við mig sem forseta á því þingi, sem nú er að ljúka. Ég þakka skrifurum deildarinnar góð störf, svo og varaforsetum mikilvæga aðstoð, sem þeir hafa veitt mér.

Þá er mér og ljúft að færa skrifstofustjóra Alþ. beztu þakkir fyrir ágæta samvinnu, enn fremur fulltrúum hans og öllu starfsliði þingsins.

Nú þegar leiðir skiljast um sinn, óska ég hv. þdm. alls velfarnaðar í sumar og læt í ljós þá ósk og von, að við megum öll hittast heil á komandi hausti, þegar Alþ. hefur störf að nýju.