17.05.1972
Efri deild: 85. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í C-deild Alþingistíðinda. (2859)

122. mál, snjóbílar vegna heilbrigðisþjónustu

Frsm. (Ásgeir Bjarnason) :

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið til athugunar í heilbr.- og félmn. og umsagnir hafa borizt frá Vegagerð ríkisins, sem mælir með frv. nokkuð breyttu, og einnig hefur borizt umsögn frá landlækni, þar sem hann telur frv. óþarft, vegna þess, að meginefni þess felist í frv. til 1. um heilbrigðisþjónustu, þ. e. a. s. 242. máli, sem liggur nú fyrir hv. Alþingi.

En frv. um heilbrigðismál mun ekki ná fram að ganga á þessu þingi, en verður athugað nánar fyrir næsta Alþ., og í trausti þess, að meginefni þessa frv., sem hér er um fjallað, verði fellt inn í heilbrigðislöggjöfina, hefur heilbr.- og félmn. orðið sammála um að leggja til að vísa frv. til ríkisstj.