17.05.1972
Efri deild: 85. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í C-deild Alþingistíðinda. (2870)

228. mál, fiskvinnsluskóli

Frsm. (Steingrímur Hermannsson) :

Herra forseti. Menntmn. hefur haft frv. þetta til athugunar, og hefur orðið sammála með tilliti til þess, að hæstv. ríkisstj. hefur sett á fót n. til að athuga staðsetningu opinberra stofnana, að mæla með því við hv. d., að þessu frv. verði vísað til hæstv. ríkisstj. til athugunar.

Ég þarf ekki að hafa um þetta fleiri orð. Ég er flm. að þessu frv. og hef rætt um málið við 1. umr.