13.05.1972
Efri deild: 80. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (2990)
280. mál, Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Á þessu þingi hefur verið afgreitt sem lög frv. til l. um Stýrimannaskólann í Reykjavík. En í landinu starfar annar stýrimannaskóli, Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum. Lög voru sett um hann fyrst árið 1964, og þeim var breytt árið 1967. Þau lög voru frá upphafi sniðin eftir gildandi lögum um Stýrimannaskólann í Reykjavík. Því er eðlilegt að samræma nú lög um Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum þeim breytingum, sem gerðar hafa verið á dögunum um Stýrimannaskólann í Reykjavík.
Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum menntar skipstjórnarmenn með réttindum 1. og 2. stigs, og er því þetta frv. aðeins miðað við þau menntunarstig. Á því er augljós þörf, að lögin um stýrimannaskólana tvo séu sem samræmdust, svo að þeir veiti fyllilega sambærilega menntun á þeim skólastigum, þar sem þeir fylgjast að. Því aðeins að fyrir því sé séð, er tryggt, að undirbúningur, kennsla og próf séu jafngild, svo að nemendurnir, sem lokið hafa 1. stigi í öðrum skólanum, geti setzt til náms við 2. stig í hinum, og ekki síður, að nemendur, sem lokið hafa 2. stiga prófi frá Vestmannaeyjum, geti haldið rakleitt til frekara náms í Reykjavík.
Ég mun ekki hafa fleiri orð um þetta frv., en leyfi mér að leggja til, að því sé að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. menntmn.