04.05.1972
Neðri deild: 69. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í C-deild Alþingistíðinda. (3029)

52. mál, Jafnlaunadómur

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Ég er hlynntur meginmarkmiði þessa frv., sem hér liggur fyrir, og mælti með samþykki þess sem nm. í allshn. Eftir að n. hafði gengið frá breytingum á frv., þeim breytingum, sem nú liggja hér fyrir, komu fram brtt. á þskj. 650 frá 12. þm. Reykv., og þar sem mér sýnist, að þær brtt. gangi ekki gegn megintilgangi þessa frv., get ég greitt atkv. með þeim og segi já.