04.05.1972
Neðri deild: 69. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í C-deild Alþingistíðinda. (3030)

52. mál, Jafnlaunadómur

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef eins og aðrir nm. í allshn. mælt með framgangi þessa frv., eins og það er nú eftir 2. umr., og mun fylgja því, en hafði hins vegar áskilið mér rétt til að bera fram eina brtt., sem ég hef flutt við síðustu gr. frv. Mér sýnist nú, að brtt. við 1. tölul. eða efni þeirra á þskj. 650 felist að verulegu leyti í 4. gr. frv., eins og þær eru, og tel því ekki þörf á að samþykkja þær sérstaklega. Ég segi nei.