15.05.1972
Efri deild: 81. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (3188)

72. mál, vélstjóranám

Frsm. (Páll Þorsteinsson) :

Herra forseti. Menntmn. hefur haft þetta frv. til athugunar alllengi. Frv. var sent til umsagnar þremur aðilum, Landssambandi íslenzkra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og skólastjóra Vélstjóraskólans. Umsagnir bárust n. frá öllum þessum aðilum, og eftir að hafa athugað þær vill n. mæla með því, að frv. verði samþykkt.