11.12.1971
Sameinað þing: 22. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í D-deild Alþingistíðinda. (3360)

117. mál, skaðabótamál vegna slysa

Flm. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Við hv. 4. þm. Norðurl. e. flytjum hér á þskj. 145 eftirfarandi till. til þál., með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj., að hún geri, með undirbúningi lagasetningar, ef með þarf, ráðstafanir til þess, að skaðabótamál vegna slysa fái hraðari afgreiðslu en verið hefur almennt.

Sé þá hafður í huga sá möguleiki, að þegar dæmt er um bótaskyldu sérstaklega, án þess að dæmt sé jafnframt um bótafjárhæðir, verði settar reglur um greiðsluskyldu hinna bótaskyldu og vátryggjenda þeirra á ákveðnum fjárhæðum upp í endanlegar skaðabótagreiðslur, sem síðar yrðu ákveðnar með dómi.“

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa um þetta lengri framsögu, en vísa til grg. með till. og legg til, að þessari umr. verði frestað og till. vísað til hv. allshn.