09.05.1972
Sameinað þing: 65. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í D-deild Alþingistíðinda. (3806)
274. mál, vegáætlun 1972-1975
Sigurður Blöndal:
Herra forseti. Ég skal nú reyna að stytta mál mitt. Það eru aðeins tvö atriði, sem ég vildi drepa á hérna. Ég vildi í fyrsta lagi fagna því í tilefni af því, að þessi nýja vegáætlun er komin fram, að hún ber vott um það, að það verður stóraukið átak í lagningu þjóðbrauta og landsbrauta á því tímabili, sem áætlunin tekur yfir, og á ég við, að ef maður tekur árin 1973—1975 og ber saman við árin 1969—1971, þá er þarna um að ræða stóraukið átak í lagningu þjóðbrauta og landsbrauta, og því hljótum við að fagna, sem einmitt búum við þessar tegundir vega.
Ég vildi bara láta þetta koma hér fram, en ég skal ekki ræða það frekar. Þá langaði mig aðeins að víkja hérna örfáum orðum að því máli, sem hér hefur verið allmikið til umr. núna í dag, þ.e. um vegaskattinn. Ég er einn þeirra, sem greiða þann þunga vegaskatt, sem hæstv. samgrh. nefndi svo hnyttilega eftir skagfirzkum bónda, þann vegaskatt, sem vegleysurnar eru fyrir okkur, sem við þær þurfum að búa. Þetta þarf náttúrlega ekki að vera að segja hv. alþm., en það er staðreynd, að farartæki okkar, sem búum við vegleysurnar, endast kannske ekki nema helminginn af þeim tíma, sem farartæki þeirra, sem aka að verulegu leyti á hraðbrautum. endast, og kannske er endingin enn þá minni á malarvegunum. Þetta er náttúrlega okkar þungi vegaskattur, og hann er hreint ekki lítill og þessu mega menn ekki gleyma, þegar verið er að tala um vegaskattinn.
Ég tel að vegaskattur á hraðbrautum sé eðlilegur og sjálfsagður, en út af þeim ummælum, sem hv. 2. þm. Reykn. við hafði hér áðan, sem mér þóttu drengileg, sem sé þeim, að hann teldi ekki sjálfa skattupphæðina, sem vegaskatturinn er, aðalatriðið í þeirri andstöðu, sem hann hefur látið í ljós gegn innheimtu vegaskatts á Reykjanesbraut, heldur það, að þessi innheimta væri einungis framkvæmd á þessari fyrstu hraðbraut. Ég fagna þeim ummælum hans, að hann er ekki í „prinsippinu“ andstæður svona umferðargjaldi. En ég get ekki annað sagt en það, út frá þeim forsendum. að farartæki, sem ekið er á hraðbrautum, endast svona miklu lengur en farartæki, sem ekið er á öðrum brautum, þá finnst mér það mjög eðlilegt, að á þeim sé innheimtur vegaskattur, og vil láta það koma hér skýrt fram sem mitt sjónarmið. Ég verð að segja það, að ég skil ákaflega vel afstöðu hv. 1. þm. Reykn. í því, að honum finnist ekki réttlæti að takmarka þessa innheimtu einungis við Reykjanesbraut, heldur hljóti þessi innheimta að verða framkvæmd líka á þeim hraðbrautum, sem nú er ýmist búið að leggja eða er verið að leggja hér í nágrenni höfuðborgarinnar. Ég geri mér grein fyrir því, að það er sjálfsagt erfitt að framkvæma innheimtu á mjög stuttum bútum, sem ráðgerðir eru sums staðar úti um land, en a.m.k. strax og þessir löngu kaflar verða orðnir hraðbrautir, eins og t.d. hér frá Reykjavík austur á Selfoss og hér upp á Vesturlandsveg, þá tel ég alveg sjálfsagt, að það verði sett í gang innheimta á þessum vegaköflum.