19.05.1972
Sameinað þing: 73. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í D-deild Alþingistíðinda. (3902)

216. mál, alþjóðlegur varaflugvöllur á Norðurlandi

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil biðja hæstv. forseta og ritarana að athuga, hvort ekki sé búið að afgreiða við fyrri umr. brtt. frá allshn. á þskj. 807. um breytingu á fyrirsögn till. En ég hef veitt því athygli, að á dagakránni er enn þá sú fyrirsögn, sem á till. var. Má vera, að það sé misminni hjá mér, að þessu hafi verið breytt við fyrri umr., frh. fyrri umr., en ef svo er ekki, þá vil ég endurtaka það, að n. leggur til einróma, að till.samþ. með þeirri breytingu, sem er á þskj. 807. og með breytingu á fyrirsögn till., þannig að þar sé ekki eingöngu rætt um alþjóðlegan varaflugvöll á Norðurlandi. heldur verði fyrirsögnin: „Till. til þál. um gerð alþjóðlegs varaflugvallar hér á landi.“