03.02.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í D-deild Alþingistíðinda. (3954)
84. mál, landgræðsla og gróðurvernd
Flm. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Ég endurtek það, sem ég sagði hér fyrr í umr., að ég fagna þeim gagnlegu umr., sem hafa orðið um þetta mikla mál. Erindi mitt hingað nú er eiginlega einvörðungu vegna stafsetningar. Hv. þm. Jónas Jónsson orðfærði spurninguna þessa, hvernig við mættum nota landið. Ég þykist þess fullviss, að hann sé mér sammála um þá leiðréttingu, að spurningin sé ekki sú, hvernig við notum landið, heldur hvernig þjóðin og landið megi hlúa hvort að öðru sem bezt.