18.11.1971
Sameinað þing: 15. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í D-deild Alþingistíðinda. (4006)
68. mál, handbók fyrir launþega
Flm. (Bjarnfríður Leósdóttir):
Herra forseti. Meginrök mín fyrir þeirri þáltill., sem hér er nú á dagskrá, koma að sjálfsögðu fram í grg. þeirri, sem till. fylgir. En auk þess, sem þar er getið, vil ég bæta nokkru við.
Nokkrum sinnum hafa verið fluttar till. á þingi Alþýðusambands Íslands um, að Alþýðusambandið gefi út handbók fyrir launþega með upplýsingum, er vörðuðu rétt þeirra. Munu vera a.m.k. 10 ár frá því að þessu máli var fyrst hreyft á þingi Alþýðusambandsins, en af fjárskorti hefur það ekki getað ráðizt í útgáfu slíkrar handbókar sem hér er um rætt. Nú nýlega hefur miðstjórn ASÍ falið Menningar— og fræðslusambandi alþýðu að freista þess að gefa út handbók fyrir launþega. Hefur Menningar— og fræðslusamband alþýðu sett á fót nefnd, sem er skipuð forsvarsmönnum verkalýðsfélaga, til þess að vinna að þessu verkefni. Menninga— og fræðslusamband alþýðu er jafnfélítið og Alþýðusambandið til þess að kosta útgáfu slíkrar handbókar, þó að eðlilegt og sjálfsagt sé, að sú stofnun móti gerð hennar og innihald. Vafalaust þarf einnig við gerð slíkrar handbókar sem hér er höfð í huga að fá til starfa lögfræðing til þess að vinna að samningu handbókarinnar, einkum til að raða saman lögum, hæstaréttar— og félagsdómum, sem skýra túlkun ákveðinna laga.
Ég tel það skyldu stjórnvalda að gefa út á aðgengilegan hátt lög og reglugerðir, sem almenning varða. Einstaka lög hafa verið sérprentuð og launþegar hafa getað fengið þau þannig í hendur. Þessar sérprentanir hafa verið á einu eða tveimur blöðum og ekki einu sinni af sömu blaðstærð. Þess vegna er ekki gott að halda þeim saman, og þau glatast fljótlega, þannig að sérprentun einstakra laga og reglugerða er alls ófullnægjandi. Af þessum ástæðum m.a. er þessi þáltill. flutt um, að félmrn. gefi út handbók launþega með því efni, sem um er getið í till. Þá á ég við, að félmrn. kosti útgáfu bókarinnar, en eins og áður segir, að haft verði samráð við Menningar— og fræðslusamband alþýðu og starfsnefnd þeirrar stofnunar um efni og samningu handbókarinnar. Ég vil ekki dylja það, að þessi þáltill. er flutt til þess að auðvelda verkafólki að gæta réttar síns. En handbókin getur líka komið að gagni í samskiptum atvinnurekenda og verkafólks, a.m.k. komið í veg fyrir árekstra. er stafa af vanþekkingu á lögum og reglugerðum. Við flm. þessarar þáltill. væntum þess, að hv. alþm. séu okkur sammála um. að nauðsynlegt og þarft sé, að félmrn. kosti útgáfu þessarar handbókar og samþykki því þáltill. okkar.
Herra forseti. Ég tel, að þessi till. þurfi ekki langrar athugunar við, en tel samt eðlilegt, að henni verði vísað til heilbr.— og félmn.