17.05.1972
Sameinað þing: 72. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 852 í D-deild Alþingistíðinda. (4378)
176. mál, rannsóknardeild vegna sölu og neyslu fíkniefna
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Út af orðum hv. þm. vil ég segja það, að ég hef fylgzt með eða réttara sagt hef verið látinn fylgjast með þeirri rannsókn, sem fer nú fram í þessu máli og mér er óhætt að segja, að eftir þeim upplýsingum, sem ég hef, þá gengur sú rannsókn vel og eðlilega og er í fullum gangi. En ég veit, að hv. alþm. skilja, að ég get ekki sagt hér nánar um þessa hlið málsins á þessu stigi.
En að öðru leyti út af þeim orðum, sem hv. þm. lét falla, vil ég segja þetta: Það er unnið að þessum málum á skipulegan hátt, eins og ég hef reyndar skýrt frá áður hér á hv. Alþ. Sett hefur verið á stofn formleg samstarfsnefnd þeirra rn. og þeirra embætta, sem þessi mál heyra undir og í þeirri nefnd eiga m.a. sæti sumir af þeim mönnum, sem áður höfðu unnið í samstarfshóp um þessi mál. M.ö.o. þar sitja þeir menn, sem þessum málum eru, að ég hygg, einna kunnugastir hér á landi.
Það var samdóma álit þess samstarfshóps að undanskildum einum, sem í honum starfaði, að það væri ekki ástæða til þess að setja upp sérstaka rannsóknardeild til þess að fást við þessi málefni, heldur mundi betur henta að hafa þennan háttinn á, að stofna til samstarfsnefndar þeirra embætta, sem þessi mál heyra undir. Einn þeirra manna, sem í þessum samstarfshópi hafði starfað um skeið, deildarstjóri á Keflavíkurflugvelli, Kristján Pétursson, sem hefur sýnt mikinn áhuga og dugnað í þessum málum, var á annarri skoðun um þetta. En af einhverjum ástæðum gat hann ekki átt samleið með þessum mönnum, sem að þessum málum höfðu áður starfað og vildi ekki lengur starfa í þessari samstarfsnefnd og fer ég ekki nánar út í það.
Ég hygg, eins og ég sagði áðan, að það sé nú unnið skipulega að þessum málum af þessum mönnum, sem við þau fást og ég hygg nú, að það sé ekki hægt að segja, að það sé tilviljun háð, hvort upp kemst um smygl eða ekki. Ég hygg, að þessir aðilar hafi allgott samband t.d. við aðila í öðrum löndum, sem með þessi mál fara þar. Ég geri ráð fyrir því, að hv. alþm. skilji, að ég og þau rn., sem þessi mál heyra undir, hljóta að taka tillit til þess, sem þeir segja og leggja til í þessum málum, sem mest hafa um þau fjallað. En ég vil segja það, að ég er opinn fyrir öllum úrræðum í þessu efni og ég er reiðubúinn til þess að leggja það nú fyrir þessa samstarfsnefnd að svara þeirri spurningu, hvort hún telur hentara að taka upp annað skipulag í þessum efnum. Og það er síður en svo, að ég hafi bitið í mig neitt ákveðið fyrirkomulag á þessum málum. Það er sjálfsagt að leita þeirra úrræða, sem að beztu manna yfirsýn munu duga bezt. Það vil ég segja. Og þess vegna get ég sagt það, hvað sem þessari þáltill. líður, sem ég svara ekki fyrir að öðru leyti, að ekki hefur verið atgreidd hér, þá mun þessum málum fullur gaumur gefinn og þeim ábendingum, sem fram komu í henni og reynt að hafa vakandi auga á þessum efnum.
Það er lofsverður og þakkarverður áhugi, sem fram kemur hjá hv. þm. í þessu máli og ég vil nú segja það, að hann og — ég vil segja í góðri merkingu — hans líkar, ungir menn, sem af einhverjum ástæðum hafa skarað fram úr eða unnið afrek á ýmsum sviðum og eru því dáðir af fjölda æskufólks, slíkir menn geta unnið ákaflega mikið verk í þessum efnum með því að skapa það heilbrigða almenningsálit, sem hér mun bezt duga. Og síður en svo er ég að lasta það, að talað sé um þessi mál á Alþ. Það er ágætt. En ég vil segja það, að ég efast ekki um, að hv. þm. getur jafnvel utan þings haft enn meiri áhrif í þá átt, sem rétt er að stefna í þessum málum, með öðrum ungum mönnum. sem þessu máli vilja leggja lið. Og ég er honum alveg sammála um það, að einskis má láta ófreistað til þess að stemma stigu við þessu.
En ég er þeirrar skoðunar, að á þessum ófögnuði verði ekki unninn bugur með neinum skyndiaðgerðum, heldur þurfi til að koma stöðugt, markvisst og óþrotlegt starf og ég veit, að um það eru allir hv. alþm. sammála. Eins og ég sagði, þá er ég alveg opinn fyrir öllum till. í þessu efni og sjálfsagt að leita þeirra úrræða, sem bezt gefast og þá með hliðsjón af þeirri reynslu, sem hér er fengin og þeirri reynslu, sem annars staðar er fengin.