17.05.1972
Sameinað þing: 72. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 854 í D-deild Alþingistíðinda. (4380)

176. mál, rannsóknardeild vegna sölu og neyslu fíkniefna

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Það hefur verið upplýst hér af einum hv. þm., að tilteknu máli hafi verið vísað til allshn. Sþ. og hafi ekki hlotið afgreiðslu frá n. Ég vil í því samhandi leyfa mér að upplýsa, að til þessarar n. hefur á þinginu verið vísað rúmlega 70 málum og hún hefur þegar afgreitt rúmlega 50. Ég hygg, að mér sé óhætt að segja það fyrir mitt leyti, að sem formaður þessarar n. er ég reiðubúinn til þess að halda áfram fundahöldum um afgreiðslu mála í n., ef ráðamönnum sýnist að halda áfram þingi lengur en fram að hvítasunnunni.