14.03.1972
Sameinað þing: 48. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í D-deild Alþingistíðinda. (4967)
923. mál, frumvörp um skólakerfi og grunnskóla
Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svörin. Ég er honum alveg sammála um, að nauðsynlegt er, að þessi tvö frv. fylgist að. Annað þeirra er ekki hægt að samþykkja án hins. Hins vegar harma ég mjög þann mikla drátt, sem orðið hefur á meðferð málsins í menntmrn. Ég vek athygli á því, að eflaust hafa fá mikilvæg frv., sem lögð hafa verið fyrir Alþ. á síðari árum, hlotið jafn rækilegan undirbúning og þessi tvö skólamálafrv., bæði af hálfu embættismanna og sérfræðinga. Og ég vek athygli á því, að þegar hafa t.d. helztu kennarasamtök landsins og helztu embættismenn og sérfræðingar á sviði skólamála tjáð sig fylgjandi meginstefnu frv. Það lá þegar fyrir á síðasta Alþ., svo að mér er satt að segja ekki alveg ljóst, hvaða aðilar hér hafa komizt í spilið til þess að gera svo mikilvægar aths., að ástæða sé til þess, að málið tefjist um heilt ár.
Ég harma mjög, að það skuli vera ákvörðun hæstv. ríkisstj., að málið skuli ekki eiga að koma fyrir þetta þing, heldur bíða næsta þings. Það þýðir í raun og veru, að eins árs töf verður á þeirri nauðsynlegu framþróun íslenzkra skólamála, sem um hefur verið að ræða undanfarin ár. Ég vek athygli á því, að hæstv. ráðh. sagði sjálfur í ræðu sinni alveg réttilega, að í þessum frv. fælust mjög mörg merkileg nýmæli og í heild mættu þau eflaust teljast mikið framfaraspor. Þess vegna ítreka ég, að ég harma, að ár skuli tapast úr þróuninni hvað þetta snertir.