12.04.1972
Efri deild: 65. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1253 í D-deild Alþingistíðinda. (5028)

128. mál, smíði strandferðaskipsins Heklu

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Fyrir hönd fyrirspyrjandans, sem nú á ekki lengur sæti hér í deild, leyfi ég mér að flytja hæstv. samgrh. þakkir fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur gefið viðkomandi fsp. Efnislega hef ég ekki tök Á að ræða svörin, geri ráð fyrir, að þau verði skoðuð betur af viðkomandi, en ég vildi láta koma fram þakklæti til ráðh. fyrir þau.