16.05.1972
Sameinað þing: 71. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1300 í D-deild Alþingistíðinda. (5110)

275. mál, menntaskólar í Reykjaneskjördæmi

Fyrirspyrjandi (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. ráðh. svör hans um leið og ég vil lýsa yfir ánægju minni yfir þeim störfum, sem umrædd nefnd hefur unnið og hversu vel og fljótlega hún hefur skilað sinni álitsgerð. Ég þykist mega vona, að okkur þm. Reykn. verði gefinn aðgangur að skýrslunni eða hún látin okkur í té, þannig að okkur verði unnt að skoða hana og virða hana fyrir okkur og meta eftir því, sem efni og ástæða er fyrir hendi.