07.03.1972
Efri deild: 51. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (651)
133. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. 2. minni hl. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Í þeim umr., sem hafa farið fram hér í dag, hygg ég, að flestir hv. þdm. hafi lýst yfir fögnuði sínum og ánægju með þann hluta nefskatta, sem af er numinn eða af mun verða numinn samkv. því frv., sem hér liggur fyrir, ef það nær gildistöku á þessu þingi, sem að er stefnt af hálfu ríkisstj. Í tilefni af þessum ábendingum, sem ég mun hafa haft yfir eins og aðrir ræðumenn, þá langaði mig til að beina tveimur fsp. til hæstv. félmrh. Ég sé, að hann hefur nú vikið úr salnum. Ef þess væri kostur að .„ Hæstv. félmrh. er kominn í salinn. Ég var að lýsa því hér áðan, að flestallir ræðumenn hér í dag hefðu lýst yfir fögnuði sínum eða ánægju, þótt með mismunandi hætti væri, með afnám þeirra nefskatta, sem frv., sem hér er til umr„ ef það verður að lögum, gerir ráð fyrir. Í þessu tilefni langar mig til að beina tveimur fsp. til hæstv. ráðh., sem mér er meinfangalaust, að ekki verði svarað fyrr en við 3. umr. málsins, — en það gæti vel staðið svo á, að ráðh. hefði ekki handbærar upplýsingar um þessi efni, og ég get vel skilið það, enda er fsp. ekki borin fram með venjulegum hætti heldur í miðjum umr.
Það er fyrst og fremst löngun mín að vita, hve fjölmennur sá hópur fólks er, sem fyrir gildistöku þessa frv., ef að lögum verður, greiddi ekki umrædda nefskatta. Það er á vitorði allra hv. þdm., að sá hópur er allstór, og um það hefur ekki verið ágreiningur hér í sölum Alþ., að eðlilegt væri, að vegna stöðu þessa fólks, efnalegrar stöðu þess í þjóðfélaginu, greiddi það ekki þá nefskatta, sem hér er verið að afnema, og væri eðlilegt, áður en málið fer úr d., að menn vissu, hve fjölmennur sá hópur er.
Í öðru lagi, hver verða hlunnindi þessa fólks við gildistöku þessa frv. umfram aðra gjaldþegna hliðstæð þeim, sem það hafði áður og voru, eins og ég áðan sagði, af öllum talin sanngirnis- og réttlætismál.
Ég vona, að þessar tvær fsp. séu nokkuð ljósar og óþarft sé að fara um þær frekari orðum. Þetta er til glöggvunar fyrir hv. þdm., svo að þeir viti, hvernig fyrirhugað er að koma til móts við þetta fólk, sem tvímælalaust hefur bágastar efnalegar ástæður í þjóðfélaginu, umfram aðra gjaldþegna í þjóðfélaginu.