19.12.1972
Efri deild: 29. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (1023)

75. mál, gjaldaviðauki

Frsm. (Bjarni Guðbjörnsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er árlegur viðburður og er í því fólgið, að lagt er til, að nokkur gjöld verði innheimt með sömu viðaukum á árinu 1973 og gert hefur verið á undanförnum árum. Þetta hefur verið árlegur viðburður, eins og ég sagði, í fjölda ára og er engin breyting frá fyrri árum, heldur endurtekning á hinu sama.

Fjhn. leggur til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.