19.12.1972
Neðri deild: 30. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1482 í B-deild Alþingistíðinda. (1076)

95. mál, almannatryggingar

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Við hv. 2. þm. Sunnl. erum meðflm. að brtt., sem er á þskj. 157 og er um, að 2. gr. frv. falli niður. En þar sem hv. heilbr.- og trn. hefur orðið sammála um að breyta þessari gr. á þann veg, sem við getum sætt okkur við, og tekið hefur verið tillit til þeirra sjónarmiða, sem lágu á bak við tillöguflutning okkar, sem var ótti okkar við aukinn kostnað, munum við hv. 2. þm. Sunnl. fylgja brtt. heilbr.- og trn., eins og þær eru á þskj. 205.