21.12.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (1281)

Þinghlé

Forseti (EystJ):

Nú verður gert hlé á fundum Alþ. um sinn. Forsetar hafa ákveðið, að þetta fundahlé verði til 25. jan., nema nauðsyn beri til að kveðja saman fundi fyrr, sem fyrir getur komið, og verða menn að vera við slíku búnir, ef til kemur. Verða næstu fundir boðaðir með dagskrá.

Ég óska hv. þm. gleðilegra jóla og farsæls nýárs. Ég þakka hæstv. ráðh., hv. alþm. og starfsliði þingsins fyrir ánægjulegt samstarf á árinu. Ég óska utanbæjarþm. farsællar heimferðar og góðrar heimkomu, og ég vona, að við megum öll hittast heil, þegar fundir þingsins hefjast á ný eftir nýárið.